Draumur.
Ef að draumur minn rætist, þá koma þeir heim með gullið.

Er búin að segja frá draumnum hér heima, þannig að það er ekkert svindl í gangi.
Kv.gþ

Þetta er skemmtilegur tími, ég á von á að vera mikið á flakki núna.
Ég er búinn að fara eina ferð á Húsavik, ég hitti marga félaga mína þar, sumir voru að koma úr Bárðardal aðrir úr Kelduhverfi.
Ég hitti gamlan vin, sem var að koma úr Reykjadal. Hann leit ekki vel út, var brotinn bæði á hægri og vinstri og skinnið farið að flagna af honum. Ég reyndi að hughreysta hann, sagði að það þjónaði ekki nokkrum tilgangi að kvarta, þetta væri sá árstími sem mikið væri á okkur lagt, og þetta yrðum við að þola, og þjóna okkar húsbændum.
Á sama tíma að ári tekur önnur vertíð við.
Hver er ég ???
ÉG ER..
Þegar ég var ung vildu margir eiga mig, ég var heppin með fyrstu fjölskylduna
hún fór mjög vel með mig, ég var hrein og fín flesta daga, andleg næring fólst í gleði og kátínu fólksins.
Það kom að því að ég varð að skipta um fjölskyldu, það var ekki góður tími,
ég var skítug, varð fyrir barsmíðum á hverjum degi, og innvolsið gekk til og frá svo stórsá á mér.
Einn daginn stóð ég uppi munaðarlaus, það var erfitt, mér var kalt, það var dimmt, og oft grét ég. Margir komu og vildu sjá mig, mörgum fannst ég lítil og illa útlítandi, öðrum fannst ég of stór.
Hver er ég ?????
Hver er ég?
Honum fannst ég ekkert skemmtileg, tók mig tvisvar upp, og setti fljótt niður aftur, spurði konuna hvort hún vildi prufa, æji, ég veit ekki, er þetta ekki alltaf eins ?? Nei hún ætla aðeins að bíða.
Ég beið og beið, mér var farið að leiðast , það var heitt, sólin skein á mig , ég gat mig ekki hreyft og matarlyktin var óbærileg. Ég fann að húðin á mér varð þvöl og jafnvel sveitt, ég fékk kvorki vott né þurrt, ég er að vísu ekki mikið fyrir svoleiðis fóður, mér finnst gott að láta strjúka mér, og heyra talað við mig blíðlega. Sumir segja að ég sé leiðinleg, öðrum finnst ég alveg frábær.
Það leið vika þá kom konan tók mig, fór með mig til félaga minna sem biðu í þúsundatali.
Ég er ...
Ég er????.
Enn og aftur er kominn morgunn. Hún tók þéttingsfast í mig og lagði af stað, var greinilega búin að ákveða hvað hún ætlaði að gera, fyrst fékk hún sér kaffi mjólk og gos, bætti síðan við kjötfarsi og til að friða sig tók hún einn pakka af tómötum með, lauk við verkið skilaði mér og fór.
Ekki tók betra við, það kom organdi krakki með móður sinni, krakkinn ákvað að stjórna þessari ferð, móðirin reyndi stöku sinnum að mótmæla og sagði” ekki núna ég var búin að segja nei” mamma gerðu það” , “nei” ,” jú mamma “og orgaði enn hærra,
“jæja þá og hættu svo að rellast” barnið glotti og þurrkaði horið.
Þar á eftir kom fjölskylda sem ekki var búin að ákveða hvernig þetta ætti að vera ,
Allir voru þykkir, eða feitir öllu heldur, húsmóðirin tók völdin, eða það hélt hún, húsbóndinn var alltaf skrefi á eftir,hann hélt í mig allan tímann,
kinnkaði kolli þegar hann var spurður, laumaði einni og einni dós með, konan sá það ekki, krakkarnir vildu kex, pabbi kinkaði kolli, hann kinnkaði kolli alveg þar til kom að borðinu, þá varð hann sveittur ,sleppti mér og labbaði út.
Hver er ég ???